Þá er haustið gengi í garð og skólarnir byrjaðir. Sumarið er eins og gamall draumur og nú er maður vaknaður og um að gera að drífa sig á fætur!
Haustið núna er allt öðruvísi en fyrir ári síðan. Þá þrammaði ég um allt með kúluna út í loftið, fór í jóga og meðgöngusund og var aðeins í 50% námi! Núna er maður heppin ef maður nær 5 tímum samfleytt í svefn, morgnanir fara svo í það að hlusta hálfsofandi á söngvaborg, gefa að borða, borða sjálfur, klæða sig og aðra, allt á sömu mínútunni!! Hlaupa svo út til að ná í tíma og að sjálfsögðu gleyma helmingnum af skóladótinu heima eða allavega símanum!
Svo fer dagurinn í það að reyna að læra, stressa sig á því hvað barnið sé að gera! hlaupa út tíma til að svara langömunni í símann,því hún getur ekki sett kerruna saman eða fest bílstólinn!
En nú fer þetta að koma, stráksi er að byrja á leikskóla, voða stór

og fóstrurnar ættu að kunna þetta!
Vil svo láta vita að ég verð ekki við frá 16 - 21 okt því þá verð ég í köpen, hjá henni Völu, ætla að smygla mér heim til hennar svo ég geti séð bubba þann 18!

Mæli eindregið að Unnur finni sér eitthvað lággjaldaflugfélag og komi líka til að hitta okkur kvennópíur!
Over and out!
Hvað segið þið annars um að hittast á brunch á vegó á sunnudeginum í hádeginu?
Ragnheiður